Boxið er með Canon DSLR myndavél og fallegu hringflassi sem skilar sér í fallegum myndum.
Allir kassarnir okkar senda notendum myndir með Emaili. Leigjandi fær síðan afrit af öllum myndum sendar á sig í tölvupósti eftir viðburð.
Það tekur um 20 – 30 mín. að setja upp dslr myndakassa. Uppsetning krefst þess að einstaklingur hafi lágmarks tæknikunnáttu. Ef að sú kunnátta er ekki til staðar mælum við alltaf með að panta uppsetningarþjónustu.
VILTU BÆTA VIÐ UPPSETNINGU OG NIÐURTEKT?
Við mætum með búnaðinn, setjum upp og tökum niður. Ef þú vilt láta okkur sjá um uppsetninguna getur þú bætt við uppsetningu hér að neðan.
Ef þú velur að bóka uppsetningarþjónustu frá okkur vinsamlegast takið fram eftirfarandi í athugasemd síðar í bókunarferlinu:
Staðsetning veislu?
Klukkan hvað hefst veislan?
Hvenær getum við komið og sett upp búnaðinn?
Hvenær getum við komið og tekið niður búnaðinn?
Ef þú ert að bóka annan búnað með myndakassanum vinsamlega sendu okkur þá tölvupóst til þess að fá verð í akstur og uppsetningu á þeim búnaði. (Þetta er einungis uppsetningargjald fyrir myndakassa og aukahluti eins og bakgrunn, prentara og props)
Á laugardögum eru skil á búnaði á milli 09:30 – 11:00 og afhending á búnaði á milli 12:00 – 14:00.
Opið er á sunnudögum yfir fermingartímabilið 2024, ef búnaður er bókaður með skiladag á sunnudegi gildir sami skilatími og á laugardögum yfir fermingartímabil.