Loading...

Einhyrningurinn – DSLR

Einhyrningurinn er sérhannaður og smíðaður af starfsfólki Rent a Party. Hann er með Canon DSLR myndavél og fallegu hringflassi sem skilar sér í fallegum myndum.

Allir DSLR kassarnir okkar senda notendum myndir með SMS eða Emaili. Leigjandi fær síðan afrit af öllum myndum sendar á sig í tölvupósti eftir viðburð.

 

VILTU BÆTA VIÐ UPPSETNINGU OG NIÐURTEKT?

Það tekur um 30 – 40 mín. að setja upp dslr myndakassa. Uppsetning krefst þess að einstaklingur hafi lágmarks tæknikunnáttu. Ef að sú kunnátta er ekki til staðar mælum við alltaf með að panta uppsetningarþjónustu.

Ef þú vilt þá getum við mætt með búnaðinn, sett upp, passað að allt virki og tekið svo saman að viðburði loknum. Bættu þá uppsetningu í körfu.

 

Ef þú velur að bóka uppsetningarþjónustu frá okkur vinsamlegast takið fram eftirfarandi í athugasemd síðar í bókunarferlinu:

Staðsetning veislu?

Klukkan hvað hefst veislan?

Hvenær getum við komið og sett upp búnaðinn?

Hvenær getum við komið og tekið niður búnaðinn?

Ef þú ert að bóka annan búnað með myndakassanum vinsamlega sendu okkur þá tölvupóst til þess að fá verð í akstur og uppsetningu á þeim búnaði. (Þetta er einungis uppsetningargjald fyrir myndakassa og aukahluti eins og bakgrunn, prentara og props)