fbpx

Karaoke

þessi pakki hentar einstaklega vel fyrir karaoke í heimahúsum og minni sölum.

Þú færð Bose S1 Pro Hátalara ásamt Ipad og tveimur Míkrófónum. Ipadinn er svo með eitt skemmtilegasta Karaoke forritið á markaðnum, Karafun þar sem eru yfir 31 þúsund lög. Einnig er hægt að fara á youtube ef þú vilt auka úrvalið enn frekar.

Uppsetning:

Uppsetningin á þessu karaoke kerfi gæti ekki verið einfaldari. Tengir ipadinn með bluetooth og stingur einfaldlega míkrófónunum í samband við hátalarann og þá eru græjurnar klárar. Þar sem það er innbyggt batterí í hátalaranum þá þarf ekki að stinga honum í samband við rafmagn.